1440 milljóna árlegar tekjur af ferðamönnum í Dröfn Hansaborg?
1440 milljónir í tekjur af ferðamönnum á ári?
Fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi árið 2013 var um 800 þúsund manns (skýrsla Arionbanka, bls. 6). Hver ferðamaður eyddi að jafnaði um 120 þúsund krónur þann tíma sem hann dvaldi á landinu.
Það má leika sér með þessar tölur á margvíslegan máta. Ef við gefum okkur þær forsendur að 15% ferðamanna heimsæki Dröfn Hansaborg og eyði að jafnaði 10% af því sem þeir eyða í landinu lítur dæmið svona út:
800.000 ferðamenn x 0,15 = 120.000 ferðamenn sem eyða sem nemur 120.000 x 0,10 = 12.000 krónum hver, alls yrðu tekjurnar yfir árið um 1.440.000.000 krónur. 1,4 milljarðar króna sem myndu renna í vasa okkar bæjarbúa á hverju ári. Til viðbótar má reikna með “ruðningsáhrifum” því ferðamennirnir munu væntanlega skoða afganginn af okkar fallega bæ.
Heimildir:
Skýrsla Arion banka um ferðamenn á Íslandi, 2014. Sjá töflu bls. 6 og 18 um meðaleyðslu pr ferðamann meðan hann dvelur í landinu (heildareyðsla). Skjalið opnast í sér glugga. https://www.arionbanki.is/library/Skrar/Frettir/Ekkert%20l%C3%A1t%20%C3%A1%20komum%20fer%C3%B0amanna.pdf

Skoðanir ykkar