Borgarturnarnir og borgarhliðin
Borgarhlið Drafnar Hansaborgar
Það verða fjórir borgarturnar, tveir snúa að miðbænum og hinir tveir snúa að holtinu (Suðurbænum). Á milli þeirra og húsanna verða myndarleg borgarhlið, aðalhliðið sem snýr að miðbæ Hafnarfjarðar verður sýnu rammgerðast enda andlit Hansaborgarinnar.
Yfirlits myndin fyrir neðan sýnir vel stöðu borgarturnanna og hliðanna. Borgarhliðið er fjærst á myndinni, snýr að miðbænum og hinir tveir turnarnir snúa að Fornubúðum og Hágranda. Þar fyrir framan verða bílastæði. Stóra bláa húsið á bakkanum fyrir miðri mynd er hús siglingaklúbbsins. Hugmynd LJG gerir ráð fyrir að það standi.
Gatan til hægri meðfram Hansaborginni er Strandgatan.
- Borgarturnarnir verða rúmlega 120 fm2 að grunnfleti á þremur hæðum með koparslegnu aflíðandi þaki og fánastöng á þaktoppi.
- Þetta verða sérstökustu íbúðir á Íslandi og þótt víðar væri leitað.
- Þeir munu henta sérstaklega vel fyrir safn um Drafnarslippinn og Íshúsið.
- Milli turnanna sem snúa að miðbænum verður veglegt borgarhlið með stórum hurðum sem hægt er að opna/loka til hátíðabrigða, t.d. á Hansadeginum í október ár hvert.
- Burgmeister eða borgarstjóri, mun hafa aðsetur í einum turninum, það verður fullt starf og felst í annarsvegar hagnýtum starfa eins og almennri umsjón með hverfinu, stjórnun á lyftibrúnni, öryggismálum við kanalinn o.fl. og hinsvegar sem protokollstjóri á hátíðarstundum í Hansaborginni.



Skoðanir ykkar