Hvað ef Hansakaupmenn hefðu haldið velli?

Bæjarstemmning í Amsterdam

Bæjarstemmning í Amsterdam

Ef Hansakaupmenn hefðu haldið velli í Hafnarfirði…
  • Þá hefði risið í Hafnarfirði HANSABORG að hætti Evrópubúa.
  • Iðandi verslunarhöfn úr steini og timbri í stíl við það sem sést í vel varðveittum miðalda gimsteinum í t.d. Tallinn og Stokkhólmi.
  • Húsin hefðu staðið á hafnarbakkanum og hafskipin hefðu legið við bryggju.
  • Húsin hefði risið sitthvorum megin á Háagranda og þannig hefði orðið til síki inn í Hvaleyrarlónið.
Svona myndi lyftibrúin í Dröfn Hansaborg líta út. Mynd frá Amsterdam.

Svona myndi lyftibrúin í Dröfn Hansaborg líta út. Mynd frá Amsterdam.

  • Til að komast frá meginlandinu yfirá Háagranda, þar sem kirkjan stóð hefði verið byggð síkisbrú með vatnslás til að halda sjávarborði í lóninu í réttri hæð fyrir hafskipin.
  • Straumar og stefnur í verslun, stjórnmálum, byggingarlist, skipasmíði, útgerð, myndlist, tónlist, tísku, matargerð, bjórgerð, verkþekkingu og almennum mannasiðum hefðu borist til Hafnarfjarðar og mótast í í landi elds og ísa og skapað suðupott hugmynda.
Rembrandtsafnið í Amsterdam

Rembrandtsafnið í Amsterdam

  • Ættum við etv. íslenskan Rembrandt í dag!?
  • Vegna ótryggs ástands í alþjóðamálum hefðu verið byggðir borgarmúrar með turnum og borgarhliðum.
  • Höfnin og byggðin hefði þróast sem lífræn eining, rík af sögu og hefðum og kröftugri nýsköpun

Hafnarfjörður hefði að minnsta kosti litið öðruvísi út en í dag. Hugmynd LJG gengur út á að ímynda sér hvernig bærinn gæti hafa litið út ef Hansakaupmenn hefðu fengið að byggja upp sinn bæ eða virki eins byggðist upp í t.d. Tallinn í Eistlandi.

Þar er vel varðveitt borgarvirki með turnum og borgarmúrum sem umlykja nútímalegan miðaldabæ.

Dröfn Hansaborg hefði getað orðið slíkur bær og getur enn orðið Hansaborg!

Þessi djarfa hugmynd er vel framkvæmanleg og bæði söguleg og fjárhagsleg rök mæla með henni.