Grandakanall – slagæð Hansaborgarinnar
Grandakanall (enska: Grand Canal?) er vísun til Háagranda og langa álsins frá firðinum inn í Hvaleyrarlónið. Á teikningunni fyrir neðan sést kanallinn, D er þar sem hann opnast út í smábátahöfnina, C er fyrir framan stóra borgarhliðið sem snýr að miðbæ Hafnarfjarðar. A, B og C eru “sjávartorg”, þar verður hægt að snúa bátum og um leið gefa þau kanalnum opnara yfirbragð.
10 metra breiður, 150 metra langur og stöðugt sjávarborð
- Grandakanall verður 10 metra breiður og um 150 metra langur (A til C).
- Afstöðumyndin fyrir neðan (smelltu til að sjá stærri mynd) sýnir vel legu kanalsins. Á myndinni þar fyrir neðan, af módelinu, sést kanallinn í réttum hlutföllum við byggingarnar.
Myndin fyrir neðan sýnir módelið sem LJG gerði til að setja hlutina í rétt hlutföll. Þú getur byggt þér þína eigin Hansaborg (sjá hér)!
- Grandakanall verður mest 20 m breiður við sjávartorgin (A, B, C)
- Það verða 8 metra breiðar gangstéttar meðfram Grandakanalnum beggja vegna, alls verður bilið milli húsa sitthvorum megin síkisins 26 metrar.
- Á gangstéttunum rúmast útikaffihús, bekkir fyrir íbúa og ferðamenn, hjólastatív, myndarleg tré.
- Engin bílaumferð verður leyfð inni í Hansaborginni meðfram Grandakanal, eingöngu gangandi og hjólandi umferð.
- Grandakanall mun tengjast smábátahöfninni þar sem dráttarbrautin er núna (D).
- Dýpt kanalsins verður jöfn mesta mun á flóði og fjöru, þannig að á stórstraumsfjöru verður hægt að tæma kanalinn. Sjávarhæð verður haldið jafnri með flóðgáttunum (E á mynd fyrir neðan) undir lyftibrúnni og þær verða opnaðar og brúnni lyft á háflóði tvisvar á sólarhring. Annar möguleiki væri að hafa tvöfaldan vatnslás til að leyfa umferð allan sólarhringinn óháð sjávarstöðu í smábátahöfninni.
Lyftibrú og flóðgátt
- Þar sem kanallinn opnast út í höfnina verður lyftibrú með vatnslás eða flóðgátt (E), flóðgáttin verður einungis opnuð á háflóði þegar sjávarborð hafnarinnar er jafnt yfirborði kanalsins. Myndin fyrir neðan sýnir módel af slíkri lyftibrú.
- Það verða mánalaga tröppur niður að sjávartorgunum (A, B og C) og þar sem höfnin er nú orðin hrein og tær væri hægt að fara í sjóböð í Grandakanalnum!
- Á sumrin verður báta- og kajakaleiga á vegum siglingaklúbbsins við síkið og ferðamannabátar munu sigla frá Hansaborginni um Hafnarfjörðinn, til Álftaness og yfir í Fjörukrána…
- Reynt verður að skapa sama lífríki og er í höfninni, íbúarnir munu geta dorgað við bakkann!
- Íbúarnir munu geta geymt bátana sína við “kajann”, siglingaklúbburinn mun geta geymt skúturnar sínar í síkinu yfir veturinn.
Í stuttu máli, lífræn og mannvæn byggð með óteljandi möguleika fyrir bæði íbúa og ferðamenn.





Skoðanir ykkar