Bürgermeister Drafnar Hansaborgar
Allar borgir þurfa sinn borgarstjóra, eða bürgermeister eins og hann gæti heitið uppá miðaldaíslensku. Myndin hér fyrir ofan sýnir borgarstjóra London fyrr á öldum (wikipedia). Bürgermeister, eða Burgmeister svo notað sé þjálla orð, Drafnar Hansaborgar myndi eiga sinn hátíðaklæðnað fyrir tyllidaga og opinberar athafnir og bregða um háls sér voldugri embættiskeðju sbr. myndina.
Bürgermeister mun hafa aðsetur í einum turninum, það verður fullt starf og felst í annarsvegar hagnýtum starfa eins almennri umsjón með hverfinu, stjórnun á lyftibrúnni, öryggismálum við kanalinn o.fl. og hinsvegar sem protokollstjóri á hátíðarstundum í Hansaborginni.
Hann mun gegna hlutverki á markaðsdögum, á opinberum dóms- og þingdögum og verða í fararbroddi í samskiptum við “innfædda” í viðskiptum og öðru sem snertir málefni Drafnar Hansaborgar.
Þetta verður mikilsháttar embætti og eingöngu vandaðir og grandvarir einstaklingar munu fá að gegna því.
Það verður verðugt verkefni fyrir hugmyndaríka hönnuði að hanna hátíðarklæðnað og embættiskeðju sem hæfir slikri merkispersónu.

Skoðanir ykkar