Höfundar- og sæmdarréttur
Þessi vefur, www.drofn.is er ekki gerður í hagnaðarskyni (þ.e. engar auglýsingar verða á vefnum). Vefurinn er ofinn til að kynna hugmynd LJG um Dröfn Hansaborg og vinna að framgangi hennar.
LJG áskilur sér allan rétt, höfundar- og sæmdarrétt sem og fjárhagslegan rétt að hugmynd þeirri og útfærslu sem hér er kynnt ef einhver yrði. Ennfremur að því myndefni þar sem ekki er sérstaklega getið heimilda um.
Öllum er frjálst að afrita síður og myndir af þessum vef til eigin nota en ekki er heimilt að dreifa efninu nema að höfðu samráði og með leyfi LJG. Ekki er leyfilegt að selja það. Gæta skal að höfundarrétti rétthafa mynda og korta sem stuðst er við á vefnum. LJG hefur kappkostað að tilgreina rétthafa og uppruna myndefnis þar sem það á við.
Hægt er fá geisladisk með mestöllu efni þessa vefjar á kostnaðarverði (kostar 1200 kr, vsk innifalinn, án sendingarkostnaðar). Hafið samband við LJG, drofn@drofn.is. Áhugasamir byggingameistarar geta einnig keypt á kostnaðarverði pappírsmódel af Hansaborginni, sjá annan póst hér á síðunni.

Svona hvetjandi vefsíða!