Dröfn Hansaborg – afstöðumynd
Gott rými fyrir nútíma miðaldabyggð
Kortið sýnir vel hvernig Dröfn Hansaborg rúmast á Drafnarsvæðinu. Hugmynd LJG gerir ráð fyrir að öll hús á svæðinu hverfi nema hús siglingaklúbbsins. Það stendur á eignarlóð klúbbsins og mun falla ágætlega inn í byggðina. Skútur klúbbsins myndu verða geymdar í kanalnum, “Grandakanal” á veturna í góðu skjóli og til ánægju og yndis fyrir íbúa og ferðamenn.
Hansaborgin hefði fjóra turna, einn á hverju horni. Milli þeirra og á milli húsaþyrpinganna yrðu borgarhlið og aðalhliðið myndi vísa mót miðbæ Hafnarfjarðar.
Smábátahöfnin mun halda sér og í raun stækka því Grandakanallinn verður framlenging á henni. Hann verður 10 metra breiður og liggur eftir borginni endilangri.

Skoðanir ykkar