Afhverju að skipta sér af skipulagsmálum?
Maður þarf ekki að vera arkitekt, grafískur hönnuður, skipulagsfræðingur eða sagnfræðingur til að hafa skoðun á skipulagsmálum í Hafnarfirði.
Það er nóg að búa í Hafnarfirði.
Gerð deiliskipulags er mikill vinna fyrir hámenntaða fagmenn í langan tíma.
Skipulagsferli sveitarfélaga sem felur í sér örfárra vikna kynningu á deiliskipulagi fyrir almenna íbúa er ekki að virka nægilega vel.
Það er erfitt að ætlast til að almennur borgari fái sömu yfirsýn og nái að mynda sér jafn heildstæða skoðun á deiliskipulagi og fagmaðurinn sem vann verkið.
Almennur íbúi hefur sjaldnast sömu aðstöðu, tíma og tækifæri og fagmennirnir til að koma með eigin útfærðar hugmyndir.
Alltof oft eru það eigendur lóða og verktakar sem ráða bæði för og hraða í skipulagsmálum, þeir hafa hvorttveggja fjármagn og bolmagn umfram hinn almenna borgara.
Söfnun mótmælaundirskrifta þegar athugasemdafrestur er liðinn er gagnslítil.
Tökum þátt í umræðunni, höfum áhrif á nærumhverfi okkar!
Hér má sækja pdf skjal með fyrirlestrinum sem fluttur var í maí 2008. Efni hans er uppfært að nokkru hér á vefnum.

Skoðanir ykkar