Dröfn – 1902
Bæjarteikningar danskra landmælingamanna
Á fyrstu árum síðustu aldar teiknuðu danskir landmælingamenn upp marga þéttbýlisstaði og húsaskipan á sveitabæjum.
Hér er kort af Hafnarfirði frá 1902. LJG hefur sett inn á kortið helstu landamerki sem 21. aldar íbúar kannast við. Háigrandi er eitt af elstu örnefnum á svæðinu, þar var upphaflega Hansabyggðin um aldamótin 1500. Verbúðirnar í Fornubúðum (Gallerí Múkki) standa þar sem Háigrandi var. Hús og skemmur Hansakaupmanna voru á Háagranda og líklega einnig landmegin við kanalinn inn í Hvaleyrarlón. Þeir reistu fyrstu lútersku kirkjuna á Íslandi á Háagranda (um 1530) og líklega var þar kirkjugarður.
© Landmælingar Íslands: http://ftp.lmi.is/baejarteikningar/default.asp?mynd=B27L449.jpg

Skoðanir ykkar