Dröfn – 2008

Drafnarsvæðið 2008

Drafnarsvæðið 2008

Drafnarsvæðið í dag

Hér er kort af Hafnarfirði frá 2008.  LJG hefur sett inn á helstu landamerki sem 21. aldar íbúar kannast við.  Háigrandi (merktur með “3”),  eitt af elstu örnefnum á svæðinu, er ekki lengur sýnilegur.  Þar var upphaflega Hansabyggðin um aldamótin 1500.

Lækurinn sem rann niður með Brandsbæ (gamla húsið ofan við Suðurbæjarlaugina) er kominn í ræsi og sést ekki lengur, hann sést hinsvegar vel á kortinu frá 1902.

Búið er að fylla upp í kanalinn sem lá frá núverandi smábátahöfn og inn í Hvaleyrarlónið.  Lónið er núna lokað frá smábátahöfninni.  Til að komast inn í lónið þarf að fara um kanal milli Hvaleyrarinnar (þar sem golfvöllurinn er) og nýja hafnarsvæðisins og hafnargarðsins.

© www.borgarvefsja.is