Byggingarkostnaðurinn
Hversu hagkvæm er þessi hugmynd?
Samkvæmt byggingarvísitölu í nóvember 2014 kostar 188 þúsund krónur að byggja fermeterinn í vísitöluhúsinu (gatnagerðargjald er ekki innifalið). Gatnagerðargjald vísitöluhússins pr fermeter er um 28 þús kr m.v. tölur frá Hafnarfirði (15% af vísitölufermetraverði). Heildarbyggingarkostnaður pr fermeter yrði þá um 216 þúsund krónur.
Það má hafa í huga að af ofannefndri upphæð rennur gatnagerðargjaldið til Hafnarfjarðarbæjar eða um 28 þúsund krónur pr. fermetra í. Ef það er uppreiknað miðað við fjölda fermetra yrði upphæðin um 28.000 kr x 16.000 fm eða um 450 milljónir króna.
Miðað við kaupsamninga gerða í Hafnarfirði á sex mánaða tímabili (jan. 2014 til júní 2014) á seldum íbúðum í fjölbýli, byggðum 2008 – 2014, er söluverð að meðaltali 275 þúsund pr. fermetra
Uppsett verð á Norðurbakka eru frá um 300 til 350 þúsund krónur pr fermeter, ca 325 þúsund að meðaltali skv. fasteignaauglýsingum í nóvember 2014.
Miðað við ofangreindar tölur og áætlað byggingarmagn (um 9000 fm íbúðir og 7000 fm verslanir) yrði heildar byggingarkostnaður 35 þriggja hæða húsa um 16 þús fm x 216 þús kr kostn eða um 3,5 milljarðar og söluverðmæti um 16 þús fm x 325 þúsund eða um 5,2 milljarðar. Allt eru þetta áætlaðar tölur.
Reiknaður hagnaður verktaka í krónum talið gæti því legið á bilinu frá 1000 milljónum upp í 1700 milljónir íslenskra króna.
Til viðbótar er svo hinar gríðarmiklu tekjur sem hafa má af ferðamönnum sem munu flykkjast í Hansaborgina árið um kring.
– Hinn raunverulegi hagnaður yrði miklu meiri: Iðandi mannlíf í spennandi og lifandi hafnarhverfi árið um kring.
- Kostnaður er að sjálfsögðu vanáætlaður og söluverðmæti ofáætlað…
Heimildir:
Hér að neðan eru vísanir í heimildir sem styðja ofangreindar tölur, ath að skjölin opnast í sér flipa/glugga.
Byggingarvísitalan 2014: http://reykjavik.is/sites/default/files/gjaldskra-februar2014.pdf
Skilgreining á byggingarvísitölunni: https://hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?ItemID=10705
Gatnagerðargjald í Reykjavík 2014: http://reykjavik.is/sites/default/files/gjaldskra-februar2014.pdf
Gatnagerðargjald í Hafnarfirði, 2007: http://www.hafnarfjordur.is/media/stefnur-og-reglur/samth-gggj-hfj-2007-asamt-breytingum.pdf
Verðsjá fasteignamats: http://www.skra.is/default.aspx?pageid=72b78300-7521-11e2-b5ee-005056864800
Fasteignaverð, auglýst: http://www.mbl.is/fasteignir/leit/?q=a5ace627619ebb89e8c4f1ef259c77e9

Skoðanir ykkar