Hversu stór verður Hansaborgin?

Dröfn Hansaborg - lifandi borg

Dröfn Hansaborg – lifandi borg

Hugmynd mín gerir ráð fyrir:

  • um 35 húsum, sem standa saman í þyrpingum, 3, 4 og 5 saman.
  • að hvert hús verði 3 hæðir að hámarki, verslunarjarðhæð með 3 metra lofthæð, íbúðarhæð og risíbúðarhæð.
  • allt að 86 íbúðum fyrir a.m.k. 258 íbúa (3 pr íbúð), íbúðastærð frá 38,5 fermetrum upp í 148,5 m2, alls um 9000 m2.
  • allt að 66 smáverslunarrýmum með 3 metra lofthæð á jarðhæð frá 38,5 m2 uppí 74,5 m2 samtals um 6900 m2. Þetta gæti einnig nýst sem íbúðir.
  • ekkert hús verður hærra en 9,4 metrar (3 hæðir), verslunarjarðhæðin verður 3m + íbúðarhæðin 2,7m + og rishæðin 2,7m + háaloft 1m, alls 9,4m, sem er svipað og hæð turnsins á húsi siglingaklúbbsins Þyts. Húsin handan Strandgötunnar er flest um 8-10 metra há upp í þakmæni.
  • litlu skuggavarpi vegna þess að húsin verða ekki hærri en 3 hæðir.  Þannig verður sólríkt milli húsa og skjólsælt.
  • góðu aðgengi að smábátahöfninni og góðum tengingum við “promenaðið” eða göngustíginn sem liggur meðfram allri strandlengju Hafnarfjarðar.
  • rúmgóðum bílastæðum, ofanjarðar og neðan fyrir íbúa, viðskiptavini og ferðamenn.