Hefjum umræðuna strax – á forsendum allra!
Sú hugmynd sem fyrst kemur fram mótar og leiðir umræðuna sem kviknar í kjölfarið.
Drafnarsvæðið verður endurbyggt.
Annað liggur ekki fyrir.
Útlit og hönnun, byggingarmagn, fjöldi íbúða og íbúa, hæð húsa, tengsl við smábátahöfnina og miðbæ Hafnarfjarðar, samræmi við núverandi byggð, umferðarmál o.fl. liggur hinsvegar ekki fyrir.
Hér getum við íbúarnir, “litla fólkið”, haft áhrif.
Enginn hefur áhuga á að verktakinn/eigandi svæðisins/byggingaraðilarnir tapi á sínum fjárfestingum.
Hagnaðurinn mælist hinsvegar í fleiru en mun á byggðum og seldum húsum.
Hverfi sem enginn vill búa í þýðir tap fyrir þann sem byggir og stórtap fyrir bæjarfélagið.
Gott og hreinskiptið samtal milli íbúa, verktaka og skipulagsyfirvalda mun tryggja öllum hámarkshagnað, hvort sem hann er mældur í krónum eða ávöxtum mannlífs í lifandi hafnarbyggð.
Hefjum umræðuna núna!
Dröfn Hansaborg, hugmynd LJG er innlegg í þessa væntanlegu umræðu, þetta er heilsteypt hugmynd sem hefur sterka tilvísun í ríkulega miðaldasögu Hafnarfjarðar og getur orðið stórkostleg lyftistöng fyrir bæjarfélagið sem sögusegull fyrir ferðamenn næstu áratugina.

Skoðanir ykkar