Ég vil sjá lífræna og mannvæna byggð…
Hvað viljum við sjá á Drafnarsvæðinu?
Ég veit hvað ég vil sjá:
Lífræna og mannvæna byggð sem þrífst í lifandi og kröftugu nútímasamfélagi í sterkum tengslum við eina elstu höfn Íslands og litríka sögu Hafnarfjarðar
Ég vil byggð:
- sem rúmar íbúðir af mismunandi stærðum fyrir yngri og eldri einstaklinga, barnlaus pör og fjölskyldur með börn.
- með verslunarrýmum sem myndu höfða sterklega til t.d. gullsmiða, úrsmiða, hönnuða, aðila með smáverslun fyrir ferðamenn, fyrir smábátaeigendur, safnara, bókaútgáfur, handverksfólk og útskurðarmenn. Þarna yrðu lögfræðistofur, hárgreiðslustofur, sérréttaverslanir með mat og drykk, litlir sjávarréttaveitingastaðir, kaffihús, sögusöfn, byggðasafn, tungumálaskólar, ferðaskrifstofur, vinnustofur listamanna o.fl. (Það yrðu engar eilífðarrónakrár…).
- sem hefur sterka tengingu við smábátahöfnina, með aðstöðu til að geyma bátinn sinn, dorga á hafnarbakkanum, skoða fuglalífið, hlusta á öldugjálfrið, njóta hafsins.
- sem yrði ekki draugahverfi eftir klukkan 17 á daginn.
- sem myndi draga að sér ferðamenn allt árið um kring sem kæmu til að njóta mannlífs og sögu en ekki hrylla sig yfir skipulagsmistökum.
- þar sem hvert hús hefði nafn og sín sérkenni sem íbúarnir yrðu stoltir af.
- sem yrði það einstök að hún yrði tákn og einkenni fyrir Hafnarfjörð.


Skoðanir ykkar