Forsaga málsins 2006

Dröfn vorið 2008

D Svipmynd frá Dröfn, tekin vorið 2008

Örlagaríkur tebolli

Forsaga málsins er í stuttu máli að árið 2004 stofnuðu hjónin Lárus Jón og Aðalheiður Gallerí Múkka í Fornubúðum 8, verbúðunum sem standa þar sem einu sinni var Háagrandi, skammt frá Drafnarsvæðinu.  Út um gluggann á efri hæð Gallerí Múkka er gott útsýni yfir Drafnarsvæðið. Lárus Jón þekkti svæðið vel, hafði á unglingsárum unnið í Slippstöðinni Dröfn, Fiskverkun Vilhjálms Sveinssonar og Íshúsinu.

Hugmyndin um Dröfn Hansaborg fæddist 2006 yfir tebolla þegar LJG sat við gluggann og velti fyrir sér þeirri áleitnu spurningu, hvernig Hafnarfjörður liti út í dag ef Hansakaupmenn hefðu fengið að halda verslun og uppbyggingu áfram á miðöldum.

Hann notaði tækifærið í tveimur ferðum til Stokkhólms 2006 og 2007, og ferð til Amsterdam  og Tallinn 2007 til að skoða og kynna sér húsagerð og yfirbragð miðaldahúsa.  Teikningavinna og módelsmíð stóð yfir með hléum haustið 2006 og til vors 2008 enda stopular stundir með ríflega fullri vinnu.

Til að gæða hugmyndina lífi hannaði Lárus Jón pappírsmódel af Hansaborginni í réttum hlutföllum.

Blautir draumar verktaka

Hugmyndin var að kynna þetta strax eftir áramótin 2008 en það dróst vegna anna en þegar stórhuga hugmyndir birtust í blaðinu Landi og sögu seint í maí 2008 ákvað LJG að reka smiðshöggið á þetta og drífa í kynningunni.

Fyrirvarinn var skammur, á mánudegi 26.maí sendi hann út tölvupósta til bæjarstjóra og skipulagsmanna hjá Hafnarfirði, til fulltrúa siglingaklúbbsins, til fulltrúa eiganda slippsins og íshússreitsins, til áhugamanna um skipulag, til fjölmiðla í bænum og á landsvísu. Á þriðjudeginum náðist í hafnarstjóra og þá um kvöldið báru LJG og dóttir hans dreifimiða í hús íbúa við Strandgötuna gegnt svæðinu og fyrir ofan Drafnarhúsið og einnig til íbúa norðan megin við Suðurgötuna (nær svæðinu), alls ca 40 íbúðir.

Kynning á hugmyndinni í maí 2008

Um 50 manns mættu, fulltrúar allra hópanna.  Fyrirlesturinn hófst um kl. 20:15 og stóð í um 35 mínútur, þá var hressing og gestum sýnt módelið á efri hæðinni og í lokin sat um helmingur hópsins og spjallaði um framhaldið.

Mikill áhugi var á að efla þessa umræðu meðal bæjarbúa, kynna svæðið betur, fá fleiri hugmyndir og mynda umræðuvettvang þar sem allir hagsmunaaðilar komi að borðinu og móti stefnu og sýn sem sátt gæti náðst um.

Í framhaldinu keypti LJG lénið Dröfn.is (og hefur greitt af því frá 2008) til að mynda þennan umræðuvettvang.

“Blessað” Hrunið bjargaði svæðinu

Síðan kom blessað Hrunið, “blessað” því það kom í veg fyrir allar meiriháttar framkvæmdir á svæðinu allt fram til dagsins í dag.  Á árunum 2008 til 2014 reyndi LJG að kynna þeim sem vildu hugmyndirnar, m.a. í Fjarðarpóstinum og með sýningu á módelinu.  Ekkert heyrðist svo af málinu fyrr en snemma í haust 2014 að skipulagsyfirvöld boðuðu til fundar í Kænunni við smábátahöfnina.  Þar kom efnislega fram af hálfu bæjaryfirvalda að byrjað yrði á “núllpunkti” og allir sem þess óskuðu fengju að koma með hugmyndir sem yrðu skoðaðar.

Á þessum fundi reifaði LJG hugmyndina um Dröfn Hansaborg í stuttu máli og fór svo að vinna að gerð vefsíðunnar drofn.is.

Það er von LJG að þessi hugmynd verði að veruleika, helst í þeirri mynd sem hann setur fram og er rökstudd á þessum vef og að þetta verði að minnsta kosti andlag við þær skelfilegu hugmyndir, að mati LJG,  sem voru á kreiki vorið 2008.

Hér má sækja pdf skjal með fyrirlestrinum sem fluttur var í maí 2008.  Efni hans er uppfært að nokkru hér á vefnum.